Færsluflokkur: Bloggar

Nýir vendir sópa best

"Orðstýr deyr aldregi, hveim sér góðan getur"

Ég held að ef við segjum nei takk við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og kjósum nýtt fólk á þing, þá sjái alþjóðasamfélagið að hér býr gott fólk sem vill þrífa til og byrja með hreint borð.

Það gerist ekki með sömu stjórnmálamennina og voru við kjötkatlana árum og áratugum saman og eru ekki traustvekjandi í dag.

Borgarahreyfingin vill SPILLINGUNA BURT.


mbl.is Var rekin vegna þjóðernis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..og hvenær verða skuldirnar færðar niður?

Launalækkanir hefjast og hvenær verða skuldirnar færðar niður? Ég meina skuldir einstaklinga, ekki fyrirtækja. Það er í fullum gangi.

Góðærið kom ekki til venjulegs launafólks. Og ekki í dreifbýlið. Það var aldrei rétti tíminn.

Borgarahreyfingin vill leiðréttingu til almennings. Þjóðin á þing. Sjáið hér.


mbl.is Starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar í Eyjum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnkerfið spyr ekki að réttlæti

Kerfið kann ekki annað en að hygla félögum úr FLOKKNUM.

Núverandi ríkisstjórn situr uppi með embættismenn og stjórnendur sem Sjálfstæðisflokkurinn setti til valda.

Embættismenn eiga, samkvæmt lögum og reglum, að vera þjónar yfirvalda en eru í raun valdastétt.

Áratugum saman hefur Sjálfstæðisflokkurinn misboðið þessari þjóð með því að setja flokksmenn sína til valda. Haldið þið að þeir þurfi að borga fyrir greiðann?

Þeir kunna ekki annað en að viðhalda kerfi Sjálfstæðisflokksins.

Borgarahreyfingin vill spillinguna burt og meinar það.

Kynnið ykkur stefnuna.


mbl.is Afskráning skulda skekkir samkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarahreyfingin vill ekki að þjóðin greiði skuldir auðmanna, er komin yfir 5%

Ef Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn neyðir ríkisstjórnina til láta okkur greiða skuldir auðmanna þá viljum við vita það. FYRIR KOSNINGAR.

Borgarahreyfingin er eini flokkurinn sem setur á oddinn að frysta eigur auðmanna á meðan rannsökuð eru sakamálin. Sækjum peningana til þeirra.

Borgarahreyfingin yfir 5%

Skoðanakannanir á Bylgjunni í mars sýndu fylgi Borgarahreyfingarinnar í 4%.

Í nýjustu könnun erum við komin yfir 5%!

Sjá hér

 


Eigum við að greiða skuldir auðmanna?

Er ríkisstjórnin, með samningum við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, að skuldbinda íslensku þjóðina til að greiða, ekki eingöngu skuldir ríkisins heldur einnig skuldir bankamanna og auðmanna?

Mættum við fá að vita þetta fyrir kosningar? Það er óeðlilegt að þjóðin fái ekki að vita hver ætlunin er.

Segjum nei við samningum við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Þjóðin á þing

Ég hvet ykkur til að skoða Borgarahreyfinguna.


mbl.is AGS tjáir sig ekki um „skjalið sem lak út“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðið gegn Íslandi:
Dúndurgreinar Michael Hudson í Fréttablaðinu

Michael Hudson verður gestur í Silfri Egils á morgun. Ég hvet alla til að lesa greinar hans í Fréttablaðinu. Fyrri greinin var 1.apríl í eldhúsdags-kálfi Fréttablaðsins á bls. 6 (mín grein var á bls. 8). Seinni greinin var í dag laugardag á bls. 22. Algjört dúndur.

Af hverju var ekki brugðist við?

Voru þetta vísvitandi blekkingar eða bara svona stórkostleg vanhæfni?
Af hverju í ósköpunum var ekki brugðist við þessu alvarlegu upplýsingum fyrir rúmu ári síðan?
mbl.is Stefndu fjármálalífinu í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra seint en ekki

Ríkisstjórn Geirs og ríkisstjórn Jóhönnu er báðar því marki brenndar að geta ekki tekið ákvarðanir um að rannsókn fari fram á glæpsamlegu athæfi bankanna.

Fjórflokkarnir eru allir vanir sömu gömlu vinnubrögðunum, ráðherraræði og lamaðri stjórnsýslu.

Það er augljóst að núverandi ríkisstjórn getur ekki tekið á þessu máli frekar en sú fyrri.


mbl.is Bankahrun afgreitt sem sakamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg hvað?

Öll fallega orðuðu loforðin um að slá skjaldborg um heimilin í landinu voru innantóm orð.
Það verða miklar eignatilfærslur á næstunni, þegar fjölskyldur breytast úr fasteignaeigendum í leigjendur í eigin íbúðum.

Kannski fá  fjölskyldurnar bara að leigja í smátíma því lífeyrissjóðirnir vilja hámarksávöxtun og munu líklega selja íbúðirnar um leið og ástandið lagast.


mbl.is Lífeyrissjóðir geti eignast íbúðarhúsnæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband